ATHUGAÐU: Grunnútgáfa (Basic) F-Droid forritsins er með færri eiginleika (t.d. ekki deilingu til tækja í nágrenninu og enga neyðaraðgerð). Hún miðast við Android 13 og getur séð um uppfærslur án afskipta notandans án forgangsviðbótarinnar eða rótaraðgangs.

F-Droid er uppsetjanlegt safn frjáls hugbúnaðar fyrir Android. F-Droid forritið auðveldar að skoða, setja upp og sjá um uppfærslur forrita á tækinu þínu.

Það tengist við öll F-Droid-samhæfð hugbúnaðarsöfn. Sjálfgefna hugbúnaðarsafnið er hýst á f-droid.org, sem inniheldur einungis sannanlega opinn og frjálsan hugbúnað.

Sjálft Android er opið í þeim skilningi að þér er frjálst að setja upp APK-pakka hvaðan sem þér sýnist, en það eru margar góðar ástæður til að nota F-Droid til stýringar á frjálsu forritunum sem þú notar:

* Fáðu tilkynningar þegar uppfærslur eru í boði
* Þú getur valið að sækja og setja uppfærslur inn sjálfvirkt
* Haltu utan um eldri útgáfur og beta-prófunarútgáfur
* Síaðu í burtu útgáfur sem ekki henta tækinu þínu
* Finndu forrit eftir flokkum eða leit í lýsingum
* Farðu inn á slóðir tengdar hugbúnaði til að styrkja viðkomandi, nálgast grunnkóða, o.s.frv.
* Tryggðu öryggið með því að yfirfara undirritanir safna og tætigildi APK-pakka
